laugardagur, apríl 03, 2004 Jæja, þessi vika var líka allveg brjáluð, fullt gert, mikið skotið og mikil lært... hérna eru nokkrar myndirMaggi @ 18:30 sunnudagur, mars 28, 2004 Núna þarf ég að koma mér aftur á stöðina, ég reyni að komast á netið í vikunni... bless á meðanMaggi @ 16:38 Ég fór í gærkveldi til Ricos, þar sem hann lauk við að klippa á mér kollin, núna er ég sáttur, kominn með Rangers klippinguna... En já, Vikan, Hún byrjaðið náttla á sunnudagskvöldi, þar sem ég snoðaði mig, og svo var vaknað á mánudagsmorgun og við fórum á eiturefnaæfingar, semsagt klæða okkur í eiturefnagallan og setja upp gasgrímuna og svona, fyrir hádegi, eftir hádegi var kennsla á talstöðvarnar, en þetta eru einhverjar fullkomsnustu talstöðvar í heimi, er svona einskonar blanda af síma og talsöð, líkt tetra og eru með dulkóðum sem eins og er er ekki hægt að brjóta upp. Svo var meira gert sem ég man ekki eins og er, minnir að við vorum að æfa okkur á riffilinn og svona. Á þriðjudaginn var farið á æfingasvæðið, þar var æfð skyndihjálp, við skutum á 300 metrum og fleirra, vorum fluttir á milli á vörubílum, þar sem við sátum á bakpokanum með byssuna í klofinu, um kvöldið var næturæfingin "BLack Jack" þar máluðu sig flestir í framan, og okkur var sýnt hitamyndavélar og nætursjónaukar, og svo var kensla í hvernig ætti að fela sig á næturnar og fleirra, einnig æfðum við að ferðast á nóttinni, og var meðal annars sktið upp ljósblysum, þar sem við áttum að fela okkur. Miðvikudagurinn var blautur og kaldur, það bullrigndi go við löbbuðum upp á æfingasvæði með allann pakkan, einhverja 4 km, sme er ekki mikið. Þar voru handsprengjuæfingar, við æfðum að kasta handsprengjum og skriðum í drullusvaðinu, það var bara nokkuð gaman, einnig æfðum við meðhöndlun skotvopna frekar. Fimmtudagurinn fór fram herstöðinni, fullt af kennslustundum og æfingum á riffilinn, fórum í Sirkus um kvöldið, öll deildin. Föstudagurinn var skemmtilegur, þá var labbað á æfingasvæðið og okkur kennt á panzerfaust ( Bazooka ) við lærðum að gera það skotklárt, miða, mæla fjalrlægð og fleirra, hrikalega þungt, um það bil 13 kg. Svo var skotið af 30 metra standi og próf tekið í að taka riffillin í sundur og setja saman, og hverstu vel maður kunni á riffillinn. Kvöldið fór í að taka til og læra. Laugardagsmorgunninn fór í stuttan fyrirlestur frá deildarforingjanum, og svo um áttaleitið fórum við heim. Næsta vika verður að öllum líkindum miklu skemmtilegri, þar sem við förum að skjota meira, og í 4. viku köstum við vonandi handsprengju, semsagt með sprengihleðslu. En ég bíð spenntur eftir næstu viku. Það eru reyndar ´prófí öllu sem við höfum verið að læra og ef maður fellur þarf maður að vera næsta laugardag að læra, held að ég kunni nú allt vona ég... Maggi @ 14:46 Jæja, ég held að það sé kominn tími til að skrifa um þessa viku og hvernig hinn venjulegi dagur er í hernum... Hinn venjulegi dagur: Hann byrjar oftast kl. 05:20 með því að við erum vaktir, við höfum 20 minutur til að raka okkur, klæða okkur og vera komnir í tvöfalda röð í ganginum, þá er farið í morgunmat, okkur er sagt hvenær við eigum að vera tilbúinir næst og með hvað a útbúnað, oftast fáum við 30-50 mín í morgunmat, eða morgunmat og að taka til í herberginu og útbúa okkur rétt. Svo byrjar dagsskráin, hún er allveg þéttbókuð, og eru ein til tvær fimm mínutna pásur fram á hádegi, Svo verðurm við að koma okkur aftur í "Tenu TAZ" sem er venjulegi hergallin og fara í mat, hofum einhverjar mínútur til að borða og gera okkur aftur tilbúna, Svo byrjar dagskráinn eftir hádegi sem er líka fullbókuð. Svo kemur kvöldmaturinn, þar hofum við líka tæpan klukkutíma til að gera allt, og eftir það heflur dagsrkáin áfram, eða það er ausgang, sem þýðir að eftir kl. 8 megum við fara út og fá okkur bjór, en bara ef herbergin eru í röð og reglu o.s.f.v. Einnig er stundum svokallaður "FAK Ausgang" þá megum við velja hvort við borðum í mötuneytinu eða förum út að borða. En kl 23:15 Er "ABV" sem þýðir að þá verða allir að ver komnir í rúmið eða standa fyrir framan rúmið í hvíldarstöðu, og það má ekki heyrast boffs, þetta ferli er tekur svona korter, ef einhver er 1 mínútu og seinn er han í mjög vondum málum, getur þessvegna verið settur í klefann. Þetta er svona hinn venjulega dagur í stuttu máli. Mötuneytið er fyrstaflokks, venjuleg skólamötuneyti komast ekki á hálfkvist á við þetta, ég meina, þegar maður er alltaf með fjölbreyttan mat, ámorgnana er alltaf hægt að fá Musli, eða kakósúppu, jógurt eða M&M jógúrt og fleirra svona góðgæti, Kaffi eða té og svo brauð og fullt af áleggi, Hádegismaturinn er líka oftast bara virkilega góður, það er alltaf té með, það er líka sjoppa í mötuneytinu þannig að það er alltaf hægt að finna sér eitthvað við hæfi. Svo er náttla kvöldmaturinninn líka fínn, og ef við erum á löngum æfingum er líka matur seint á kvöldin. Einnig er oft úti staður þar sem hægt er að fá sér ávexti, té og hergóðgæti ( herkex og hersúkkulaði). Herbergin eru mjög plain, ca16 -18 manns í herbergi, hver með einfalt rúm, allir með sama köflótta rúmlakið og einn lítin tvöfaldan skáp fyrir ofan rúmið, annar helmingurinn er fyrir personulega muni og hinn fyrir herdót. það verður að læsa þeim, og þetta er privat, ca 40 lítra skápur, samtalst 80 lítrar :) Á rúmgaflinum eru hakar fyrir allar töskurnar og tækjabeltið, semsagt, við eigum eina F-tösku, sem er taskan sem við tökum með heim og er fyrir personulega muni og þvott og svona. svo er bardagapokinn, það er venjulegur bakpoki, með regngallanum og eiturefnagallanum, einnig er í honum, hreinsisettið fyrir byssuna og skónna, og svo Matarílátið með hnífapörum og neyðarprímus. Einnig eru auga undirföt og sokkar í pokanum, svo er sjónvarpspokin, sem er bakpoki sem fer aftan á tækjabeltið. Tækjabeltið er svo grunnbúnaðurinn, Í þvi hefur maður skotfæratöskuna, tösku fyrir handsprengjur, vatnsbrúsan með bolla og gasgrímu, ásamt tvem atropin sprautum (mótefni gegn taugagasi). Þetta verður allt að vera hengt upp eftir ákveðnum reglum og enginn bönd mega snerta gólfið. Fyrir ofan rúmið, ofan á skápunum er svefnpokinn og hjálmurinn geymdur, Vinstra meginn við skápan eru herðatre fyrir fötin, þau verða að var hengdupp rétt, verða að snúa að glugganum og vera í réttri röð, fyrst kemur vinnu TAZ (venjulegi hergallinn) svo kemur Kulda TAZ, svo PA TAZ ( fíni hergallin sem máður á sjalfur) og svo PA Kulda Taz, og svo "Ausganger" eða viðhafnabúningurinn. Frammi á gangi eru skórnig geymdir í rekkum og byssurnar, Skórnir verða líka að vera í réttri röð og reimarnar verða að vera ofan í þeim, Fyrst koma herklossarnir, svo fínu skórnir, svo koma bæði pörin af íþróttaskónum og svo inniskórnir. Rifflarnir verða að var með lásinn opin og ekkert magasín í. Þegar maður labbar um verður hergallinn alltaf að vera rettur, allir vasar lokaðir, og rennilásin verður að nema við eftri hluta nafnspjaldsins, maður verður alltaf að bera höfuðfat, nema kennslustöfu og matsalnum, en þar má maður ekki bera það. Núna er ég búin að lýsa svona nokkurn vegin hverig þetta lítur út og svona, ef þið viljið vita eitthvað, þá bara endilega spyrja, lýsi á eftir seinustu viku. Maggi @ 11:16 |
Tungumál - Sprache Um mig Bloggari: Magnús Ragnarsson Bloggarar Solla gella Tenglar
Skotfélagið Skyttur Gestabókin Skoða gestabókinaSkrifa í gestabókina (skylda!) Spjall Annað Það hafa heimsótt migsíðan 2. Nóv 2003 að skoða Skjalasafn 05/11/2003 - 05/18/2003 |