*
*
*
*

sunnudagur, október 24, 2004

Jæja, þá ætla ég að segja frá þessari viku, sko seinustu viku og vera komin á réttan kjöl með bloggið loksins...

Sko mánu og þriðjudagur fóru í skyndihjalparþjalfun, en ég sá mér til mikillar mæðu að þeir sem voru að kenna voru ekkert að kunna þetta neitt vel, en þar sem maður er búin með skyndihjalp 1, 2 og 3 hjá flubbunum í reykjavík þá tók maður bara að sér að kenna hana, líka þeim sem áttu að kenna hana, þetta var verra en sú skyndihjálp sem maður lærir þegar maður tekur bílpróf...

En svo fóru hlutirnir að vera skemmtilegir, á miðvikudag var undirbúningur fyrir stóra æfingu á föstudeginu, semsagt alvöru bardagaæfingu með leyserbúnaði og púðurskotum, nema ég og annar félagi minn fengum sérstaka þjalfum, við fengum alland dagin frá kl 8 að morgni til kl 24 um kvöldið, leyniskyttuþjalfun, ekki að skjóta heldur það erfiða, að læðast að skotstöðunni, bíða og undirbúa, læðast til baka, og þetta er erfiðasta þjalfun sem ég hef gert í hernum.

Við fengum búnaðin, það var ekkert lítið, eins og sést á myndunum í albuminu, svo var bóklegt fram að kaffi, svo gerðum við okkur smá felugalla, enda ekki mikið hægt á svona stuttum tíma, og meðan hinir fóru að fá sér bjór, fórum við með þyngsta bakpoka sem ég hef haft á bakinu að læaðst um allan skóginn með nætursjónauka, og það var labbað frekar hratt, og með þennan poka á bakinu, hef aldrei verið komin nálægt mörkunum og þarna... en ég lifði þetta af á lokum, en þetta var bara undirbúningurinn sko ;)

Svo á fimmtudaginn var farið að skoða safn, eða her safnið í Sviss, einkarekið safn sem sérhæfir sig í skriðdrekum og svoleiðis hlutum, mjög gaman að skoða, tók líka nokkrar myndir þaðan, þarna er hægt á laugardögum að fá að fara með eða keyra skriðdrekana á safninu, en öll farartækin eru ökuhæf á safninu, og það eru vægast sagt mörg áhugaverð ökutæki þarna.. eftir hádegið, var farið í kjarnorkuver, eða það stærsta í sviss, sem framleiðir 1200 Mw, það var líka mjg áhugavert, við fórum inn í strompin stóra, sem einkenna kjarnorkuver, en það er bara kæliturn, og þarna inni er 38 gráðu hiti og 100% loftraki, bara eins og gufubað.

En svo leið að föstudeginum, allir fóru að sofa um átta leytið til að vakna um kl 3 um nóttina, nema leyniskytturnar, þær fóru út í skóg, elduðu sér mat og gerðu sig til fyrir langa nótt :)

Við byrjuðum á því að labba langa leið, með náttla þennan stóra og þunga bakpoka, við komum að litlum skúr, þar klæddum við okkur úr meðan hins stóð vakt og fórum í regngalla, svo löbbuðum við upp á sem náði á köflum upp að mitti, við löbbuðum svona 700 metra í ánni, en ég var nsætum dottin stundum, enda erfitt að halda jafnvægi með þennan poka og riffil í hendinni, félagi minn datt einusinni með hausin á bólakaf, en slapp, sem betur fer var nætursjónaukin vatnþéttur, en hann var með hann á andlitinu.

Okkur var búið að seinka soldið þannig að við ákvaðum að sitja fyrir óvininum á öðrum stað en var planað, semsag að stija fyrir þeim hjá brú og litlu þorpi, við komum okkur fyrir í hlíð rétt hjá, eða um 80 metra frá, en þetta leyserdæmi var ekki að virka nógu vel hjá okkur og því neyddumst við til að vera svona nálægt, annars hefðum við verið í minnsta lagi 2-300 metra í burtu, en við földum okkur mjög vel undir felunetum og biðum, ferðin á staðin tók 7 klst, þótt þetta væri bara 2 km spölur, en leyniskyttur fara alltaf hægt yfir, við biðum í skotstöðu í 3 og halfan tíma, en það kom þoka um morguninn, og við heyrðum óvinina labba framhjá, en sáum þá ekki, ekki heldur í nætursjónaukanum, þannig að við urðum að láta ´þá sleppa í þetta skiptið, hefðum ekki getað farið nær, því þá hefum við fundist og gátum ekki skotið bara upp í lofið, svona er þetta bara stundum, en okkar mission var samt ágætt, við lifðum það af.

Svo læddumst við til bara á herstöðina og fórum að sofa, enda veitti ekkert af, en sváfum bara í tvo tíma, því svo þurftum við að þrífa og ganga frá öllu draslinu, svo um fjöguleitið fórum við heim í helgarfrí, og núna er það búið og ég er að fara aftur...

Núna verð ég bara að vera duglegur að skrifa á næstunni, en í næstu viku verður farið einvhvert í sviss þar sem við verðum heila viku á æfingu í að vakta hús eða "object", setja gaddavír í kring og vakta 24/7

En þangað til næstu helgi, bið ég bara að heilsa


Maggi @ 16:55

En já, við fengum tvö stór frí seinustu viku, tvö fimm daga frí, sko við fengum frí því við áttum að fara að vakta hersýningu í frönskumælandi hluta Sviss, eða í um viku. Fyrst fengum við þó skemmtilega þjalfun á nýja riffillin hja hernum, en það er stutta útgáfan af okkar, svipað og M4A1 hja kananum, en já, hann er allavega mjög stuttur, með red dot sjónauka og rosa skemmtilegur að skjóta með... en hvað um það.

Við fórum til Martygni eftir þetta langa frí og skotæfingarnar, þar áttum við að vakta þessa hersýningu á nóttunni, og á dagin höfðum við frí bara, nema við sváfum þá aðalega. en þarna var fullt af spennandi dóti, skriðdrekar og annað skemmtilegt, ég lærði að skjóta stinger flaug go hvernig maður skýtur með artillery eða miðar út skotmök með eagel bílnum, já og svo kynntist maður leopard 2 og CV9030 frá hagglund, en það er nýr APC sem herinn var að kaupa, semsagt fólkslutningadreki, allt tölvustýrt inn í honum, tölvuskjáir út um allt og 30 mm fallbyssa sem skýtur 200 skotum á mínútu (fræðilega).

En á kvöldin vorum við alltaf á sýninguni að skoða, allir voru að drekka eða í tívoli, eða skoða græjurnar, var bara nokkuð gaman, nema þegar við vorum á vakt, ekkert erfitt svosem, bara gerðist ekkert, við vorum bara vopnaðir með piparspreyi... en það er svosem nóg.

Einn dagin fór ég ásamt nokkrum félögum að skoða hæðstu stíflu í evrópu að á að heita, en hún er einmitt í þessum hluta landsins, langt upp í fjöllum á afskektum stað, hún er frá botni og up 285 metra há, en virðist minni, tók nokkrar myndir af henni, við fórum einnig í skutlukepni á henni, en einginn skultan komst niður því þær brotlentu alltaf á stífluni, sennilega sökum uppstreymis, en já, man ekki eftir neinu bitastæðu, nema já efitir þetta þá fengum við aftur 5 daga frí, frá þriðjudegi fram á sunnudag, en hvað það var mikið sældarlíf :)



Maggi @ 16:36

Jæja lesendur góðir, núna er kominn tími til að skrifa seinustu 5 vikur eða svo þar sem ég er búin að vera allt of latur að skrifa, og var bara næstum búin að gleyma blogginu, en held að ég skipti þessu niður í nokkra kafla, þar sem það er margt búið að gerast á seinustu vikum.

Sko, vika 27 eða vikan eftir VIP Ævintírið vorum við einhverstaðar í ölpunum að hreinsa vopnasvæði af sprengjum og sprengjubrotum, þetta var einhverstaðar langt upp í fjöllum og það var nokkuð kalt, en þarna höfðu stórskotaliðið ásamt sprengjuvörpum skotið mörgum tonnum upp í hlíðar fjallsins, við fórum með strigapoka hver og bakpoka, svo hófst leitin, það var leitað í öllum kimun og gjótum, fundum fullt af drasli, og nokkrar virkar sprengjur, sem voru annaðhvort sprengdar á staðnum eða færðar og sprengdar saman.

Að vera 30 metra frá 8.1 cm sprengju úr sprengjuvörpu (mortar) er svakalegt þegar hún springur, það drynur allt og nötrar, þvílík upplifun, en ekkert við hliðina á 12 cm mortar sprengju, við fundum eina virka í fjallshlíð, nánar tiltekið í skriðum, það var settur sprengjubúnaður upp og við fórum í skjól bak við risa klett í um 100 metra fjarlægð og biðum með munnin opin, en maður verður að hafa hann opin þegar það er verið að sprengja eitthvað stórt út af þrýstingnum.
Við biðum, svo allt í einu kom líka þessi höggbylgja, það var eins og allt titraði, stóri keltturinn titraði, loftið titraði og þessi djúpi bassa hvellur var rosalegur, svo sáum við risa hnullunga og grjót fljúga yfir okkur mörg hundruð metra fram í dalinn fyrir neðan. Þetta mæli ég með að allir upplifi, prumpa bara á kínverjana sem manni fannst svo skemmtilegir áðurfyrr.

En já, eitt sem ég var ekki búin að segja frá heldur var að við vorum eina viku í lögregluþjalfun, semsagt svona grunnþættir og kynningar, þar vorum við meðal annars settir út á gatnamót og áttum bara að stjórna umferðinni, eftir korters tilsögn, slökt á umferðarljósunum og maður stendur þarna eins og asni, en þetta er samt ekkert svo erfitt, maður er bara stressaður fyrst.

Einnig var farið í ransókn á vettvangi, hvað á að taka myndir af, hvað á að skrifa niður, hvað á að gera yfir höfuð... Einnig allt um áfengi og akstur, eyturlyf, eyturlyfjahunda og svona almenn löggukynning, en mjög áhugavert.

Og frá Íþróttamótinu sem ég tók þátt í, þar sem keppt var í 300 metra skotfimi, handsprengjukasti, og 4 km hlaupi lenti ég í sæti 48 af 500 eða svo, og í 11. sæti í skotfimi.

Svo fórum við á meistaramót í skotfimi líka, alltaf að gera eitthvað svona :) og þar lenti ég í 8. sæti af veit ekki hvað mörgum, en allavega 165 hæðstu voru á listanum :) ég var 2. hæðstur í mínu kompaní en svo daginn eftir var próf hjá okkur í skotfimi, þar sem maður getur unnið orðu á búningin, en ég er alltaf svo oheppin þarna, maður þarf að ná 72 stigum af 85 og ég náði sama og seinast, 71 stigi. Ég skil þetta bara ekki, mér er bara ekki ætlað að fá þessar orður, einnig fitnesorðan, vantaði 10 stig til að ná 325 stigum sem þarf til að fá hana, seinast vantaði mig 7 stig til að ná 265 sem þurft þá :( held ég sé ekki hæfur hermaður.

En þýðir ekkert að vera fúll yfir því, ég á orðið tvær orður í skotfimi...


Maggi @ 16:11

Tungumál - Sprache

Deutch

Um mig

Bloggari: Magnús Ragnarsson
Fæðingardagur: 24.08.82
Búseta: Reykjavík, Ísland
Tign: Fyrsti Óbreyttur
Staða: MP ( Herlögregla )
Deild: Inf Ber 104-1
Skylda: 15.03.04 - 07.01.05 (lokið)


Heimilisfang:
Magnús Ragnarsson
Stórholt 14
105 Reykjavík
Ísland

Sími: 8680546
MSN: maggragg[hjá]hotmail.com
Sendu mér póst

Bloggarar

Solla gella
Tinna
Jóhanna
Alla Rún
Jumper
Oskar og Vala
Klakinn
Björk
Konni
Sigga Fríða

Tenglar

Skotfélagið Skyttur
Myndaalbúm
Friðagæslan í Kapúl
Utanríkisráðuneytið
NordicSniper
Svissneski herinn
Hugi.is
FBSR
Íslensk síða um FFL
PoppTíví
RÚV

Gestabókin

Skoða gestabókina
Skrifa í gestabókina (skylda!)

Spjall

Nafn

URL eða Email

Skilaboð(Broskarlar)

Annað

Það hafa heimsótt mig
síðan 2. Nóv 2003


skoða

Skjalasafn

05/11/2003 - 05/18/2003
11/02/2003 - 11/09/2003
11/09/2003 - 11/16/2003
11/16/2003 - 11/23/2003
11/23/2003 - 11/30/2003
11/30/2003 - 12/07/2003
12/07/2003 - 12/14/2003
12/14/2003 - 12/21/2003
01/11/2004 - 01/18/2004
01/18/2004 - 01/25/2004
01/25/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 02/08/2004
02/08/2004 - 02/15/2004
02/15/2004 - 02/22/2004
02/22/2004 - 02/29/2004
02/29/2004 - 03/07/2004
03/07/2004 - 03/14/2004
03/14/2004 - 03/21/2004
03/21/2004 - 03/28/2004
03/28/2004 - 04/04/2004
04/04/2004 - 04/11/2004
04/11/2004 - 04/18/2004
04/18/2004 - 04/25/2004
04/25/2004 - 05/02/2004
05/02/2004 - 05/09/2004
05/09/2004 - 05/16/2004
05/16/2004 - 05/23/2004
05/30/2004 - 06/06/2004
06/06/2004 - 06/13/2004
06/13/2004 - 06/20/2004
06/20/2004 - 06/27/2004
06/27/2004 - 07/04/2004
07/04/2004 - 07/11/2004
07/18/2004 - 07/25/2004
07/25/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 08/08/2004
08/08/2004 - 08/15/2004
08/15/2004 - 08/22/2004
08/22/2004 - 08/29/2004
09/05/2004 - 09/12/2004
09/12/2004 - 09/19/2004
09/19/2004 - 09/26/2004
10/24/2004 - 10/31/2004
10/31/2004 - 11/07/2004
11/07/2004 - 11/14/2004
11/21/2004 - 11/28/2004
11/28/2004 - 12/05/2004
12/19/2004 - 12/26/2004
01/09/2005 - 01/16/2005
01/16/2005 - 01/23/2005
02/20/2005 - 02/27/2005
02/27/2005 - 03/06/2005



This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

.