*
*
*
*

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Í gær og í dag erum við búin að fá þjalfun frá lögreglumönnum og sérfræðinugm fyrir næsta verkefni sem byrjar á morgun, að passa sendiráð. Við erum búnir að fara í sljalfsvörn, sálfræðiþætti og annað sem viðkemur þessu, mjög áhugavert.

Í gær var rosa viðhöfn í einum kastala, þar sem okkar sveit var afhent formlega "Milsich" Allir æðstu menn hersins mættu, náttla á þyrlu, og nokkrir ráðherrar og fullt af háttsettum mönnum og fréttafólki. Enda erum við fyrsta deildin sem eru svokallaðir "Durchdiener" eða þeir sem taka herskilduna í einum rykk og eiga að vera þeir bestu og vera tilbúnir í hvað sem er...

Fjölmiðlar bíða eftir hneiksli frá hernum til að setja í fréttirnar, enda þónokkur andstaða gegn hernum hérna, og vjið erum eins og er í fremstu víglínu hvað þetta varðað, það eru vonir bundar við okkur :)

En það er kominn matur...
Maggi @ 10:16

mánudagur, ágúst 09, 2004

Jæja, þá er fyrsti dagurinn búin hérna. Við erum ekki bara kominn í viðbragðsdeild, heldur erum við orðnir herlöggur, allavega búin að fá merkin og allt. Þetta er geggjuð herstöð hérna, stór herbergi, með góðum skápum, allavega betra en það sem við höfum haft hingað til, hérna er líka flottur veitingarstaður og flott íþróttasvæði.

En dagskráin er strax búin að breytast, við förum á miðvikudaginn strax í verkefni, þufum að fara til Geng að passa sendiráð í 10 daga, og missum þar af leiðandi af slöngubátaþjalfuninni :(

En við fengum góðan fyrirlestur um Stress Management áðan, þetta verður spennandi...

EN ég er líka komin með nýja adressu, svo þið getið sent mér pakka eða póstkort, enmig vantar endilega mikið af appolo konfektlakrís í stóru gráu pokunum, elska hann, svo væri ekki verra ef maður fengi annað gott líka ;)

En adressan er:

Sdt Ragnarsson Magnus
Zug 2
Inf Ber 104-1
Kaserne
8903 Birmensdorf
Swiss


Heyri í ykkur seinna.

Maggi @ 21:26

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Jæja, þá er herþjalfunn minni lokið í hernum og ef ég væri bara venjulegur hermaður, þá væri ég kominn í frí núna, þangað til á næsta ári, þar sem ég þarf að fara 3 vikur á ári í endurþjalfin til 32 ára aldurs. En ég er í þeirri deild sem tekur alla herskylduna í einu, og erum við úthlutaðir til herlögreglunar.

Við erum um 120 manns sem verðum viðbragðsdeild hersins, við eigum að vera tilbúnir að fara hvert sem er í Sviss á innan við klst. Ef eitthvað gersit eins og náttúruhandfarir, hriðjuverk, mótmæli eða annað þessháttar verðum við í action þar. En þar sem þetta gerist ekki á hverjum degi þá er allur tímin planaður sem þjalfun, við fáum mjög fjölbreytta og skemmtilega þjalfun eins og ég var áður búin að nefna.

Við erum þeir fyrstu sem gera þetta, þannig að við erum líka tilraunaverkefni. Ríkisstjórnin bindur vonir við okkur, en þetta er það sem hún vill sjá í framtíðinni, her sem er meira atvinnuher heldur en miliz her eins og núna, en miliz her er her þar sem allir fá þjalfun og allir landsmenn eru hermenn með vopnin heima hjá sér tilbúinir alltaf. eða eitthvað í þá áttina.

Já, semsagt til 7. Janúar 2005 verð ég í hernum... Við höfum ekkert eiginlegt frí eða neitt þannig, en ég býst við að þetta verður mjög spennandi tími. Það bjóðast miklir möguleikar á eftir, og þá sérstaklega fyrir Svisslendinga, en þeir sem hafa gert þetta eiga miklu betri möguleika á vinnumarkaðinum. Plús að það er gott að fá vinnu í þessum geira með þessa þjalfun og reynslu sem við höfum úr þessu, t.d. eigum við möguleika á að vinna hjá herlöggunni á eftir, eða fara í friðargæslu eða atvinnuherinn. Einnig býðst möguleikinn á að halda áfram upp stiga (foringjaskólinn).

En já, ég kem með fréttir af þessu hvernig þetta verður allt saman. en ég er mjög bjartsýnn á þetta.


En efég segi smá frá seinustu viku, þá var hún nú aðeins strembnari en ég bjóst við, hún líktist soldið fyrstu vikunni, stress og caos. Við skiluðum öllum búnaðinum, svo kom í ljós að það var einn sjónauki horfinn, semsagt einhver hafði stolið honum, en þetta er 80.000 króna stykki og kallast viðkvæmur búnaður, þannig að herlöggan mætti á svæðið, leitaði í gegnum allan búnaðinn okkar, hvern og einasta, hvar var þuklaður, og allir personulegir munir gaumgæfilega ransakaðir, þeir vopru greinilega að leita að einhverju fleirra en sjónauka, því ég efast um að það sé hægt að fela svoleiðis stykky undir skóinnleggi.


En svo kom föstudagurinn langþráði, þar sem deildin okkar tyndi svo miklum búnaði, þurfti að reikna tapið út og það tók soldin tíma, við tyndum búnaði fyrir u.þ.b. 350.000 kr, og sjónaukin er talin með. Þetta var dregið af laununum okkar.

Svo um kl. 18:00 fórum við heim, með allan búnaðinn okkar, beltið, bakpoka, tösku og riffillinn, Ykkur finnst það kannski skrítið að maður sé með herriffil í lestinni bara svona í hendinni, en þetta er bara ósköp eðlilegt hérna í Sviss, það tekur meira að segja enginn eftir því þítt maður rölt um með herriffill á bakinu á opinberum stöðum...

En já, í fyrramálið legg ég í hann, kannski er plás fyrir lappan, vona það og þá verð ég í sambandi í vikunni, en að mér skildist er líka tölvustofa á þessari stöð sem við erum á þannig að ég held að ég verð í meira sambandi við umheiminn en áður.

En þetta er komið gott í bili held ég, heyrumst.
Maggi @ 20:46

Tungumál - Sprache

Deutch

Um mig

Bloggari: Magnús Ragnarsson
Fæðingardagur: 24.08.82
Búseta: Reykjavík, Ísland
Tign: Fyrsti Óbreyttur
Staða: MP ( Herlögregla )
Deild: Inf Ber 104-1
Skylda: 15.03.04 - 07.01.05 (lokið)


Heimilisfang:
Magnús Ragnarsson
Stórholt 14
105 Reykjavík
Ísland

Sími: 8680546
MSN: maggragg[hjá]hotmail.com
Sendu mér póst

Bloggarar

Solla gella
Tinna
Jóhanna
Alla Rún
Jumper
Oskar og Vala
Klakinn
Björk
Konni
Sigga Fríða

Tenglar

Skotfélagið Skyttur
Myndaalbúm
Friðagæslan í Kapúl
Utanríkisráðuneytið
NordicSniper
Svissneski herinn
Hugi.is
FBSR
Íslensk síða um FFL
PoppTíví
RÚV

Gestabókin

Skoða gestabókina
Skrifa í gestabókina (skylda!)

Spjall

Nafn

URL eða Email

Skilaboð(Broskarlar)

Annað

Það hafa heimsótt mig
síðan 2. Nóv 2003


skoða

Skjalasafn

05/11/2003 - 05/18/2003
11/02/2003 - 11/09/2003
11/09/2003 - 11/16/2003
11/16/2003 - 11/23/2003
11/23/2003 - 11/30/2003
11/30/2003 - 12/07/2003
12/07/2003 - 12/14/2003
12/14/2003 - 12/21/2003
01/11/2004 - 01/18/2004
01/18/2004 - 01/25/2004
01/25/2004 - 02/01/2004
02/01/2004 - 02/08/2004
02/08/2004 - 02/15/2004
02/15/2004 - 02/22/2004
02/22/2004 - 02/29/2004
02/29/2004 - 03/07/2004
03/07/2004 - 03/14/2004
03/14/2004 - 03/21/2004
03/21/2004 - 03/28/2004
03/28/2004 - 04/04/2004
04/04/2004 - 04/11/2004
04/11/2004 - 04/18/2004
04/18/2004 - 04/25/2004
04/25/2004 - 05/02/2004
05/02/2004 - 05/09/2004
05/09/2004 - 05/16/2004
05/16/2004 - 05/23/2004
05/30/2004 - 06/06/2004
06/06/2004 - 06/13/2004
06/13/2004 - 06/20/2004
06/20/2004 - 06/27/2004
06/27/2004 - 07/04/2004
07/04/2004 - 07/11/2004
07/18/2004 - 07/25/2004
07/25/2004 - 08/01/2004
08/01/2004 - 08/08/2004
08/08/2004 - 08/15/2004
08/15/2004 - 08/22/2004
08/22/2004 - 08/29/2004
09/05/2004 - 09/12/2004
09/12/2004 - 09/19/2004
09/19/2004 - 09/26/2004
10/24/2004 - 10/31/2004
10/31/2004 - 11/07/2004
11/07/2004 - 11/14/2004
11/21/2004 - 11/28/2004
11/28/2004 - 12/05/2004
12/19/2004 - 12/26/2004
01/09/2005 - 01/16/2005
01/16/2005 - 01/23/2005
02/20/2005 - 02/27/2005
02/27/2005 - 03/06/2005



This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com

.