|
|
sunnudagur, júlí 04, 2004 Jæja, ætli maður þurfi ekki að skrifa eitthvað um vikuna. Það var stór æfing í vikunni, og svo var ég á vakt miðviku og fimmtudag, en það er mesta letidjobb í heimi, maður stendur vakt úti í klukkutíma, sefur í þrjá klukkutíma, vakt í 1 klukkutíma, sofa þrjá tíma o.s.f.v. eða svona næstum því... En það er allavega rólegt djobb.Um helgina fór ég að hitta Íslendinga í Zurich og horfði þar á bara geggjaða flugesdasýningu, sem tók 30 min!! og hef bara ekki seð annað eins áður. já við fengum nefninlega að fara heim á fimmtudagskvöldið út af einhverju, sennilega hefur yfirmaður okkar bara verið í svona góðu skapi eða eitthvað. Ég nýtti tíma og fóra að versla, fann þrjár DVD sem ég keypti, en ég keypti þær með því skylirði að þær væru með íslenskum texta, ensku tali og væru góðar... Das Boot, payback og Top Gun uppfylltu þessi skylirði, það besta fannst mér samt að Das Boot, þar eru 5 mismunandi undirtitlar, Enska, þyska, Tyrkneska, Hindi og Íslenska. Hvað er hún að gera með öllum þessum útbreiddu túngumálum. Næsta vika verður svipuð, tvær stórar æfingar og svo á föstudaginn verður öllu pakkað saman og við förum eitthvað annað, með öðrum orðum, þarnæsta vika verður hellweek, eða æfing sem heytir úthaldsvika, þessa viku fáum við lítið að borða og lítin svefn og það er einhver 50 km marsch í henni líka, hljómar spennandi, gaman að sjá hvað margir fara að væla... :) En núna er ég að verða of seinn í lestina, þarf að fara. Sendið mér endilega sms eða eitthvað svoleiðis... Maggi @ 17:27 |
Tungumál - Sprache Um mig Bloggari: Magnús Ragnarsson Bloggarar Solla gella Tenglar
Skotfélagið Skyttur Gestabókin Skoða gestabókinaSkrifa í gestabókina (skylda!) Spjall Annað Það hafa heimsótt migsíðan 2. Nóv 2003 að skoða Skjalasafn 05/11/2003 - 05/18/2003 |