Jæja, sæl verið þið, þá er minni fyrstu viku lokið í hernum, hún var stöng og fljót að líða. það var hver einasta mínúta skipulögð og maður hefði ekki margar mínútur skipulagðar fyrir sig... En þetta var líka mjög skemmtileg vika og fróðleg, Sérstaklega fróðlegt að sjá að hvað Svissnesk ungmenni eru mikið agaðri en við Íslendingar, þótt það væri þó nokkrar undantekningar.
En ef ég segi frá vikunni í stuttu máli ( öll sagan kemur vonandi á morgun ) þá byrjaði þetta á mánudag þar sem við mættum með íþróttatöskurnar og borgaralegum fötum, okkur var skipt í 4 deildir (Zug) í okkar fylki (Kompanie). Það var strax byrjað að kenna okkur að standa rétt, labba rétt, heilsa rétt o.s.f.v. Þannig að fyrsta daginn vorum við í borgaralegum klæðum að hlaupa um og standa réttstöðu o.s.f.v. Svo fengum við allan búnaðinn hægt og hægt, settum allt saman, fengum riffillinn afhentan af Kaptein (Hauptmann) og fárum að æfa með hann, við þurftum að læra allar tygnirnar utanað, læra allar uppraðanir á deildinni, heilsa, öryggisreglur varðandi riffillinn, skottækni, fullt af námskeiðum (theory) allt á að vera raðað rétt í herbergjum, 2 athuganir (Inspektion) voru gerðar og svo var í gær loka athugun, þar sem allt sem við höfðum verið að læra var prófað.
Við stóðumst það, miðað við að þetta var fyrsta vikan... Svo fengum við að fara heim kl 8:30 í morgun.
Ég skipti um deild einnig í gær, sem var soldið leiðinlegt, þar sem maður var búin að eignast góða félaga og þurfti svo að færa sig um herbergi og deild...
Því miður náði ég ekki fleirri myndum þar sem ég hafði bara ekki meiri tíma til þess að taka myndir, en það kemur vonandi meira í næstu viku þar sem þetta verður aðeins rólegra og spennandi hlutir fara að gerast, við förum t.d. að skjóta á mánudaginn. Maggi @ 16:29
Tungumál - Sprache
Um mig
Bloggari: Magnús Ragnarsson
Fæðingardagur: 24.08.82
Búseta: Reykjavík, Ísland
Tign: Fyrsti Óbreyttur
Staða: MP ( Herlögregla )
Deild: Inf Ber 104-1
Skylda: 15.03.04 - 07.01.05 (lokið)
Heimilisfang:
Magnús Ragnarsson
Stórholt 14
105 Reykjavík
Ísland