|
|
|
|
laugardagur, febrúar 21, 2004 Jæja, núna er kominn tími til að skrifa eitthvað, ekki búin að gera það lengi, en það tók eflaust enginn eftir því heldur :)En já, í dag kíkti ég á herbúðirnar sem ég á eftir að vera í. Hptm Johnson eða Kjarri sýndi mér allt heila klabbið, en hann er foringji þarna, veit ekki hvað þessi tign heitir á Íslensku, en hann er kompaní stjórnandi, og náttla Íslendingur, eins og við var að búast. Af öllum stöðum sem ég gat farið á í Sviss lenti ég þar sem "hinn" íslendingurinn er, gaman að þessu. Þetta lítur allt mjög vel út og ég er bara orðin verulega spenntur, en það er nú ekki langt þangað til að þetta byrjar. Ég fekk líka bref í dag frá skólastjóranum með helstu upplýsingar sem ég þarf að vita áður en ég fer þangað.... Og svo fekk ég nokkrar dagsetningar, eins og hvenar þið eigið að koma að heimsækja mig :) Skólinn byrjar 15.03.04 kl. 13:30 og er til 06.08.04 kl. 16:00 Og þeir sem vilja koma á útskriftina (eða hvað sem það heitir) er velkomið að koma þá... Heimsóknadagurinn er 19.06.04 á skotsvæðinu í Aarau. Ykkur er líka velkomið að koma þá... bara endilega :) Lengri frí eru sem hér segir: Fimmtudagurinn 9.04.04 kl. 18:00 til Þriðjudagsins 13.04.04 kl. 12:00 Miðvikudagurinn 19.05.04 kl. 18:00 til Sunnudagsins 23.05.04 kl: 23:15 Föstudagurinn 28.05.04 kl. 18:00 til Mánudagsins 31.05.04 kl. 23:15 Laugardagurinn 31.07.04 kl. 07:15 til Mánudagsins 02.08.04 kl. 12:00. Djö... af hverju er þetta frí ekki lengra :( Annars eru frí alltaf frá laugardegi kl. 07:45 til sunnudagskvölds kl 23:15, nema þegar maður þarf að standa vakt... Og svo býst ég við að 09.08.04 byrji vinnan, að vakta sendiráð og svona dót og verður það allveg til 07.01.05. En ég er 43 vikur allt í allt. En þetta er miðað við að ég taki áætlunina eins og hún stendur, þetta getur allt breyst ef ég fer í undirforingjaskóla, eða foringjaskóla sem ég geri eflaust ef mér býðst það... þannig að ég læt ykkur bara vita þegar að því kemur, Og látið svo endilega vita hvenar þið komið með fyrirvara ;) Ég er líka búin að setja inn heimilsifangið hjá mér í hernum, svo þið getið sent mér bref (eða pakka), en þar sem ég veit ekki í hvaða kompaní ég er í og hvaða Zug þá stendur bara N/A þar, það kemur um leið og ég veit það... Maggi @ 18:57 |
Tungumál - Sprache Um mig Bloggari: Magnús Ragnarsson Bloggarar Solla gella Tenglar
Skotfélagið Skyttur Gestabókin Skoða gestabókinaSkrifa í gestabókina (skylda!) Spjall Annað Það hafa heimsótt migsíðan 2. Nóv 2003 að skoða Skjalasafn 05/11/2003 - 05/18/2003 |