Það er búið að bjóða mér á eina virtustu bílasýningu heims í Genf, heitir eitthvað expo eitthvað, þar sem frændi minn er með VIP inn á sýninguna og ég fæ að fara með, jýbbý... Sýningin er eitthvað í byrjun Mars, vonandi bara ekki eftir 15. Mars. Það er bara spurning hvort hann fari á Porche 911 eða Ferrari 328, nú eða bara á fólksbílnum, Audi A8 :)
Ég var líka fá nýja tölvu og nýtt skrifborð, þetta er allveg svaka græja með 21" flatskjá, fyrir þá sem hafa vit á tölvum er þetta 2,8 MHz vél með 1024 MB í RAM, og svo 256 MB GeForce Skjákorti, ekki slæm græja það, og skrifborð sem er rafstýrt, getur hækkað það upp svo maður geti staðið við það, verst að ég má ekki spila leiki í tölvunni, bara að vinna á AutoCAD...
Já svo styttis í það að herinn byrji, Það verða víst 500 nýliðar í búðunum sem ég verð í og samhvæmt nýjustu heimildum eru allt að því 33.3% líkur á því að það verði Íslendingur sem verður yfir mér, ekki slæmt það, en hann sýnir mér örugglega enga miskun heldur :) Býst við meiru af mér þar sem ég er Íslendingur...
Svo eru líka bara 9 dagar þangið til ég kem. Ég fékk í dag pakka sendan frá systur minni, henni Bibbu, með harðfiski og öðru íslensku nammi, mmmm, takk Bibba. Maggi @ 19:30
Tungumál - Sprache
Um mig
Bloggari: Magnús Ragnarsson
Fæðingardagur: 24.08.82
Búseta: Reykjavík, Ísland
Tign: Fyrsti Óbreyttur
Staða: MP ( Herlögregla )
Deild: Inf Ber 104-1
Skylda: 15.03.04 - 07.01.05 (lokið)
Heimilisfang:
Magnús Ragnarsson
Stórholt 14
105 Reykjavík
Ísland