|
|
|
|
sunnudagur, nóvember 30, 2003 Hehe, þetta var bara ágæt helgi... Ég hélt að Íslendingar væru slæmir þegar það kemur að ódýru áfengi, reyndar erum vip slæmir hvað varðar það magn sem við drekkum, en vá... þvílík biðröð á föstudagskvöldið. Ég mætt korteri fyrr, til að tryggja mér að ég myndi nú örugglega koma fyrstu inn, en nei, ég þurfti að bíða í rúman klukkutíma í biðröð til að komast inn.Það var svo stappað þarna inni að það var ekki hægt að gera neitt, maður var heppin ef maður komst á barinn til að nota þetta 5 fr. tilboð. En já, ég hélt að svona klessubiðraðir væru bara til á íslandi, en svo er ekki, þær eru líka til í Sviss :) Og svo skellti ég mér í gær aftur, og með myndavél með mér, var svona einskonar djammljósmyndari, og var ekki sá eini. Það voru frekar fáir í gær, eiginlega bara tómt miðað við föstudagskvöldið, voru kannski 100 manns... En já, það voru allir að spyrja fyrir hvaða síðu þetta var og ég sagði bara að þetta væri fyrir íslenska djammsíðu :) hehe Já ég tók nokkrar myndir og afraksturinn er í albuminu. En þeir eru með svona kortakerfi á þessum skemmtistað, þar sem Sviss er soldið á eftir okkur í kortanotkun hafa þeir tekið á það ráð að allir sem koma inn fá svona smartkort og versla á það, svo þegar fólk fer út þá borgar það upphæðina sem er komin á kortinu, þetta getur verið hættulegt ef þú ert kærulaus, en maður þekkir þetta nú vel á íslandin, borgar með korti hvort eð er. En þessar moskitos er pirrandi hérna, ég hélt að þær myndu nú drepast þegar það færi að kólna, en maður þarf ennþá að drepa nokkrar áður en maður fer að sofa á hverju kvöldi, það hefur nú samt minnkað aðeins, núna er það kannsi bara ein á kvöldi að meðaltali, fyrir mánuði drap ég kannsi 6 hvert kvöl og var samt bitin, veit ekki hvaðan þessi kvikindi koma!!! Maggi @ 12:45 |
Tungumál - Sprache Um mig Bloggari: Magnús Ragnarsson Bloggarar Solla gella Tenglar
Skotfélagið Skyttur Gestabókin Skoða gestabókinaSkrifa í gestabókina (skylda!) Spjall Annað Það hafa heimsótt migsíðan 2. Nóv 2003 að skoða Skjalasafn 05/11/2003 - 05/18/2003 |